The world of pinky
Ómissandi síður
22.09.2006 15:49:29 / pinky

Ný síða

Jæja komið að því að prófa að breyta til:-) Endilega segja hvað ykkur finnst

http://www.helgasolveig.bloggar.is


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 11:28:43 / pinky

Nú jæja

Já já nú er mín sko búin að kaupa sér kort í World Class laugum og ætla bara að vera dugleg að mæta:-) Er með þennan hörku einkaþjálfara sem heitir Stefanía Guðmundsdóttir aka Steffí gull og efast ég ekki um að fyrr en varir verðum við orðnar flottastar, erum það náttúrulega núna en alltaf hægt að gera betur hehe

Nóg af egoinu í Helgunni í dag, ekkert ofboðslega mikið að frétta eitthvað, fór í rúman tveggja tíma göngutúr í gær um Elliðarárdalinn (vona að það sé skrifað svona;-)) með nýja gönguhópnum sem by the way ég held að allir séu velkomnir að taka þátt í. Þetta var ekkert smá ótrúlega gott og manni leið eins og ofurkonu eftirá og í framhaldi af því fór ég að passa Selmu kjuti pæ fyrir Steffí mína.. Þannig borga ég semsagt einkaþjálfunina hehe, en þetta var mjög svo yndislegt kvöld og ekkert leiddist mér eftir að Selman sofnaði þar sem mjög svo myndarlegur drengur hélt mér occupied.

Næsta helgi fer bara í það að vinna á Svarta á föstudagskvöldið og svo aukavakt í Smáralindinni allan laugardaginn eða frá 10-18 þannig endilega kíkið á mig ef ykkur leiðist ofboðslega:-) Svo er ég að reyna að fá Guðrúnu snúllu í smá skemmtilegheit á laugardaginn say no more, krosslegg putta að hún sé game enda komin tími á okkur skvísurnar í smá pakka

Pinky sem er bara ánægð með lífið þessa dagana over&out


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 00:32:55 / pinky

Amæli

Takk fyrir allar góðu kveðjurnar á afmælisdaginn minn:-) Það er æðislegt að sjá hvað maður á marga góða að og finna það líka, því það er virkilega það eina sem maður þarf í þessu góða lífi sem maður lifir! Afmælisdagurinn var mjög góður í alla staði og svo voru nokkrir sem heiðruðu mig með nærveru sinni um kvöldið heima hjá brósa:-) Æðislegt kvöld þar á ferðinni og já bara eiginlega eitt af því besta hingað til, alltaf svo gaman hjá Helgunni þegar hún er innan um fólk. Vantaði samt elskuna mína sem fór til Austurríkis í skiptinám, en hann var sko með okkur í anda og jú einnig nokkrum sinnum í símanum hehehehe
Var svo á þvílíkum menningardegi á Laugardeginum, fór að ná í Lilju og Brínkuna um hádegið og við fórum á góðvin okkar KFC;-) Besti vinur á svona dögum sem hægt er að eiga, veit ekki hvað ég gerði ef hann hefði ekki komið inní líf mitt. Nú Liljan fór svo heim en við Brínkan byrjuðum daginn fyrir alvöru með ferð í kolaportið, vá hef ekki komið þangað inn í mörg herrans ár og gat skal ég ykkur segja gert nokkuð góð kaup og nokkrum vörum þar. Við fórum einnig í Perluna, Vegamót, kirkjugarðinn og enduðum svo heima hjá mér í góðgæti:-) Yndislegur dagur þar á ferðinni, nú kíkti "aðeins" á Óliver um kvöldið með Hildi FEIM gellu og var brjálaða stuðið þar á bæ. FH-ingarnir mættu í öllu sínu veldi og audda í hamingjuvímu eftir sigur dagsins, ekkert smá gaman að svona fótboltaguttum þegar þeir lyfta sér upp á góðum dögum hehehe Og ekki vantaði myndarlega karlmenn þangað inn þetta kvöldið;-) Ég var aðeins lengur en ég ætlaði mér en yfirgaf staðinn í góðri fylgd að ég hélt um þrjú leytið, fór í þessa litlu leigubílaröð sem var en tókst samt að vera vakandi til 6:-( Hefði sko viljað í dag þegar ég vaknaði að ég hefði lagst á koddann minn svona 4 tímum fyrr!!

Hvernig getur maður stjórnað hjarta sínu sjálfur og ráðið hverjum það fellur fyrir og hverjum ekki???  Ef einhver hefur svör við því endilega látið mig vita þar sem þetta er gjörsamlega hulin ráðgáta fyrir mér og gerir mér þar með ekki auðvelt fyrir. Það kemur manneskja inní líf þitt sem getur breytt því á einni svipan og þú veist ekki af því, annaðhvort breytir hún því til góðs eða slæms en þú ræður engu hvort verður. Þetta er alveg ótrúlegt og ekki gott myndi ég segja en einnig á sama tíma ekkert sem við ráðum við, því miður.

Pinky býður góða nótt með hugsanir sem sem ákváðu að dansa hringdans í höfðinu á mér þennan daginn.

» 7 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 21:34:25 / pinky

Já þetta er bara að bresta á skal ég segja ykkur!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Allt að gerast bara á þessum fáu dögum sem eftir eru vikunnar:-) Ekki gleyma honum elskulega krúttustrák okkar Íslendina sem er gjörsamlega magnaður í alla staði, MAGNA;-) Mér finnst hann og þetta krútt Toby sem er með honum hérna á myndinni bara æðislegir og vil ég einfaldlega sjá annan hvorn þeirra vinna og þá helst Toby bara..

Svo sætir saman þessir tveir og verðskulda svo toppsætið sko.

Síðan er sko Föstudagurinn að renna upp þar sem maður yngist víst um eitt árið í viðbót, veit ekki alveg hvar þetta endar. Jú reyndar með þessu áframhaldi endar maður sjálfsagt á 0, en eins og þið vitið öll þá færist maður bara uppá við í aldri uppað ákveðnum aldri hehe;-) Ein eitthvað að reyna að bulla hérna til að mér líði betur með þetta.

Oh Hanna beib kom hingað í kaffi til mín í gærkvöldi með litla kútinn sinn hann Aron og guð hvað þessi litlu saklausu grey geta brætt mann rosalega:-) Bara með því að liggja í fanginu hjá manni og gefa eitt lítið bros sér maður hver tilgangurinn með öllu lífi manns er. Mér finnst þetta eitt það dásamlegasta sem til er í heiminum og þegar Helgan er orðin stór stelpa og tilbúin að takast á við lífið hehe í fullorðins manna tölu þá veit ég að þetta verður það dásamlegasta sem getur gerst;-)

Varð að vera smá væmin sko, allaveganna svona annaðslagið.

Well farin heim til brósa aðeins

Pinky over & out

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.09.2006 12:50:41 / pinky

Hún er 26 ára í dag!!!!!!!

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag. Hún á afmæli hún Brínkan mín, hún á afmæli í dag:-) Hún er 26 ára í dag, hún er 26 ára í dag. Hún er 26 ára hún Brínkan, hún er 26 ára í dag:-)

Þrefalt húrra fyrir stelpunni, húrra, húrra og húrra

Eigðu frábæran dag elskan mín og njóttu hans í botn, sjáumst hressar og kátar í kvöld.

Love you beib


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.08.2006 11:28:50 / pinky

Jæja jæja

Alveg komin tími á smá færslu hingað inn:-) Svona áður en allir hætta að lesa held ég bara, nei nei segi svona er nú ekki það léleg held ég í skrifum8|

Síðasta helgi var mjög svo interesting, róleg með Liljunni minni og Auði skvísu á Föstudeginum og svo á Laugardeginum var dagurinn tekin snemma, mín farin á fætur löngu fyrir hádegi og boðið í þennan fína morgunverð A la pabbi:-) Nú mín skellti sér svo uppá völl og fór á Gróttu-Íh leik sem endaði reyndar 1-1, ekki alslæmt það þar sem tvö mjög góð lið voru að keppa. Hef aldrei séð neinn leik áður með ÍH og hvað þá heyrt um þá í miklum mæli og verð að segja að þeir eru að spila mjög sterkt og komu skemmtilega á óvart. Nú við Steffí skelltum okkur svo í Keflavíkina um kvöldið og get ég nú ekki sagt það að þetta sé spennandi djammstaður enda við komnar í bæinn aftur um 3:-) Jú jú ágæt tilbreyting en vorkenndi pínku dj á þessum tveimur stöðum sem við fórum á þar sem voru bara nokkrar hræður inni ef það skyldi kallast til að verða hálf þrjú! Ég og Brínkan fórum í bíó á Sunnudaginn á myndina You,Me and Dupree með Owen Wilson, Kate Hudson, Matt Dillon og Michael Douglas. Mæli eindregið með þessari mynd en get nú samt ekki alveg tekið undir það að þetta sé besta grínmynd, en góð er hún:-) Fórum líka á hana í VIP salnum sem lætur mann ekki vilja fara aftur í bíó í hinum sölunum hehe ´

Ég er byrjuð á nýja vinnustaðnum, er enn hjá SPRON en komin í annað útibú sem er enn betra:-) Og þá meina ég betra afþví það er fimm mín frá heimili mínu og bara vinnutími frá 9-5 sem er yndislegt, dagurinn einhvern vegin miklu fljótari að líða svona og æðislegt að geta alltaf verið komin heim á skikkanlegum tíma!!!!!

Svo í lokin smá fótboltafréttir:-) Skellti mér á völlinn í gær reyndar útí rassgati í Hafnarfirði einhversstaðar upp við Hvaleyravatn sem fannst á endanum með góðar leiðbeiningar án þeirra hefði ég misst af leiknum hehe Þar vorum við Gróttumenn teknir í nefið og töpuðum leik 5-0 svo var horft á KR-Þrótt seinna um kvöldið, (greyið Brínkan mín) og þar lifnaði sko heldur betur yfir minni. Unnum 1-0 og erum þar með komin í úrslit í Visa bikarnum á móti Keflavík, JIBBÝ JIBBÝ JIBBÝ. 30. Sept verður ekki hægt að fá mig til að gera neitt frá klukkan 14:00 og þangað til leikurinn er búin þar sem ég mun vera á Laugardalsvellinum;-)


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.08.2006 21:44:41 / pinky

Back from Spain

Já já þá er mín komin á klakann aftur eftir yndislega 10 daga veru á Spáni:-) Þetta var alveg æðislegt og geggjað gaman að koma litlu frændum mínum svona á óvart hehe þeir áttu ekki til orð að stóra frænka skuli vera komin til þeirra þegar þeir vöknuðu hehe
Ferðin byrjaði ekki eins vel og hún hefði getað gert þar sem asna Iceland Express gerði 7 og hálfs tíma seinkun á fluginu mínu, vá hvað ég var orðin pirruð en ekkert smá heppin að Jóna María og Grétar skuli búa þarna rétt hjá flugvellinum og vilja taka mig að sér á meðan ég beið eftir réttum flugtíma. Átti semsagt að fara í loftið um 16:00 en fór ekki fyrr en 23:30. En í loftið fór ég og lenti í Alicante um 6 um morguninn að spænskum tíma, þannig mín sofnaði ekkert fyrr en bara um hádegi með Helgu Nótt snúllu:-)  Ég fór svo til Björn Ragnars frænda í tvær nætur sem var massa gaman, aðeins kíkt á lífið í Torriveja og svona skemmtilegt hehe
Ferðin var svo bara tekin í góða aflslöppun með fjölskyldunni, mamma og Rakel Ýr litla systir voru náttúrulega líka þannig þetta var æðisleg mæðgnaferð hjá okkur bara í faðmi sætu snúllanna minna sem eru nýflutt út. Ég tók alveg fullt af myndum sem ég lofa að setja inn á næstu dögum, er í þessum töluðu orðum að henda hluta af eyjamyndunum inn svo vonandi njótið þið góðs  af:-)
Mín er að leka niður úr þreytu gjörsamlega  og á að mæta í vinnu í fyrramálið þannig fer að call it off. Helgin er ekki plönuð að öðru leyti en kíkja kannski á leikinn á Gróttuvellinum á Laugardag og hitta vonandi Guðrúnu mína á kaffihúsi. Annars verður hún í rólegri kantinum bara;-)
Pinky over & out

» 5 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 18:23:46 / pinky

EYJAR 2006:-)

Er ekki komin smá tími á að láta heyra í sér eftir þessa mögnuðustu, æðislegustu og yndislegustu helgi ársins:-) Þetta var mín þriðja þjóhátíð og þótt hinar tvær hafi verið æðislegar var þessi ein sú albesta enda er það hér með ákveðið að ég mun sitja í brekkunni að ári liðnu:-) Við héldum skvísurnar í W.W.W af stað í Herjólf strax eftir vinnu á Föstudaginn, að sjálfsögðu í fallegu peysunum okkar og með fullan bíl af dóti eins og vera ber. Sú sjóferð gekk svona upp og niður í orðsins fyllstu merkingu þar sem var mjög slæmt í sjóinn og því miður ekki allir sem þola það eins vel, ég var með ágætum góð en tókst þar með aðeins að hjúkra þeim sem þurftu á því að halda í mínum fagra stúlknahóp. Nú við komuna inní dal var bróðir minn og hans vinir svo yndislegir að hjálpa okkur skvísunum að koma okkur fyrir enda smá úði á lofti og því um að gera að fá fleiri hendur til að ljúka þessu af sem fyrst og komast smá sightseen tour með stúlkuna í hópnum sem var virgin á þjóðhátíð:-) Kvöldið var með eindæmum gott og get ég ekki betur sagt en stoltari hef ég ekki verið að honum Harry vini mínum, þvílíka æðislega tilfinningin að hitta hann í brekkunni í grenjandi rigningu, skítugum pollagalla og standani uppá steini í miðri brekkunni syngjandi og dansandi. Held að maðurinn hafi fundið tilganginn með útilegustemmningu og er ég nokkuð viss um að sá maður mun standa uppá þessum sama steini að ári liðnu;-) Laugardagurinn tók svo við þegar við vöknuðum ofurhressar gellurnar fyrir hádegi og skelltum okkur á besta stað Vestmannaeyja Cafe Maria, keypt var það sem gleymst hafði í RVK og skelltum við okkur svo í sturtu. Nú í framhaldi hélt mín niður á höfn að taka á móti Steffí, Maríu og Hildi að ég hélt en þegar að var komið keyrði bláa þruman hennar Steffíar útúr dallinum og enginn annar en hann Bjössi minn undir stýri mættur í öllu sínu veldi á tíundu þjóhátíðina sína:-) Vá hvað minni brá og bros færðist yfir allt andlit mitt, nú voru flestir af mínum nánustu vinum mættir með mér í dalinn (þótt að sjálfsögðu hafi vantað einhverja sem stóðu í einhverju öðru þessa helgina en láta sig ekki vanta 2007;-)). Nú stemmningin var eftir þessu öllu og get ég ekki sagt annað en restin af þessari hátíð gekk algjörlega eftir bókinni, bara stuð, stemmning og nokkuð gott veður. Nú Pétur Ingi kom svo surprice á Sunnudeginum þannig þar með voru tveir Tígrar í hópnum okkar á eyjunni þetta árið, sannir tígrar þar á ferð (voru reyndar þrír á eyjunni en ég hitti þessa tvo) Brekkusöngurinn startaði með öllu sínu veldi og vá yndislega veðrið og skemmtunin, já Pinky er enn með hnút í maganum. Var reyndar líka alveg ótrúlega fyndið að hlusta á þrjár magnaðar mæður á ferðinni fyrir utan tjaldið á Mánudagsmorgni þegar þær komu í annarlegu ástandi að reyna að pakka almennilega saman þar sem þær áttu flug klukkan 9 um morguninn,vá hvað ég hefði viljað hafa falda myndavél á þeim:-) Við héngum svo í dalnum frameftir kvöldi, ég , Brínkan mín, Ibbulíus og Bjössi þar sem við áttum seinustu ferðirnar heim af okkar liði. Mín grillaði handa þeim hamborgara og stóð mig víst alveg í stykkinu en það sem var mest fyndið þetta kvöldið áður en við yfirgáfum svæðið var þegar prinsessurnar mínar voru látnar taka niður tjaldið og pakka því saman, það hófst á endanum hjá þessum elskum með miklum hlátri hjá mér og Bjössa hehe En þær sýndu það og sönnuðu þessar prímadonnur mínar eru sko alveg útilegumanneskjur eftir allt saman þrátt fyrir ekkert sléttujárn og engan hárblásara:lol: Sjóferðin heim gekk vonum framar og vorum við Bjössi svo heppin að við náðum einu lausu kojunni held ég sem eftir var í dallinum og ég svaf þar með eins og steinn alla leiðina til Þorlákshafnar enda fórum við af stað um 01:30.

Jæja ætla að fara að klára þennan erfiða vinnudag hérna og koma mér heim að klára að ganga frá. Reyni að skella inn myndum frá hátíðinni í kvöld ef ég hef einhverja orku í það.

Vil bara enda þennan pistil á því að þakka öllu þessu elskulega sæta fólki sem hjálpaði mér að gera þessa helgi að ógleymanlegri skemmtun, "LÍFIÐ ER YNDISLEGT" "AÐ ÁRI MUN ÉG VAKNA UPP Í VESTMANNAEYJUM" HEHE Love you all.

Pinky kveður að sinni


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.08.2006 00:34:54 / pinky

Jæja þá er komið að því!!!!

Eyjar 2006 á morgun hvorki meira né minna, undirbúningurinn senn á  enda og alvaran að taka við:-) Þetta verður yndislegt þrátt fyrir slæma veðurspá, hvað er samt málið með veðrið alltaf hérna um verslunarmannahelgi:-( En við alvöru útilegu og skemmtanafólk látum það sko ekki stoppa okkur, var reyndar að fá sms frá Brínkunni minni í þessum töluðu orðum um að búið væri að loka dalnum og fólk bent á íþróttahúsið sökum óveðurs. En hey íþróttahúsið er fyrir kellingar og væluskjóður, (segi ég þangað til annað kemur í ljós með okkur hehe) og fyrir utan það þá hef ég alltaf sagt að best sé að koma sér bara á eyjuna góðu á Föstudegi.
Nú er búið að setja nánast allt dótið í bílinn og þvílíka magnið hef ég ekki séð, jú jú svona er þetta víst þegar bíllinn er tekin með og ég segi nú bara sem betur fer á brósi stóran bíl annars hefði eitthvað verið skilið eftir.
Jæja hef ekk meir að segja nema gangið hægt um gleðinnar dyr, hvað sem þið takið til bragðs þessa skemmtilegu ferðamannhelgi:-)

EYJAR 2006 OG W.W.W GENGIÐ STANDA SAMAN ÞETTA ÁRIÐ Í AÐ GERA ÞESSA HELGI AÐ EINNI ÓGLEYMANLEGRI SKEMMTUN!


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 02:19:12 / pinky

Einungis 4 dagar:-)

Já gott fólk ekki nema fjórir dagar í hátíðina miklu og get ég ekki sagt annað en að undirbúningurinn er í hámarki hjá WWW grúbbunni ásamt fylgdarliði:-)
Nú enn ein helgin liðin og mín var í rólegri kantinum og öllu sem því fylgdi, við Brínkan mín kíktum aðeins út á Föstudagskvöldið og þá bara á Sólon í smá tíma og hittum þar mjög svo áhugavert fólk úr öllum áttum hehe Nei segi nú bara svona þetta var mjög svo fínt kvöld og eiginlega bara mjög skemmtilegt í alla staði og enn skemmtilegra þegar krúttið mitt hann Bjössi birtist þarna aðeins valtur á fótum hehe Var farin snemma heim bara enda early wake up next morning þar sem við Liljan ákváðum að skella okkur til mömmu, pabba og Rakel Ýr í Húsafell í bústaðinn sem þau eru í:-) Þetta var alveg hreint æðisleg ferð, þvílíka afslöppunin sem átti sér stað þar þrátt fyrir einungis sólarhring í þessari æðislegu sveit  kom mín alveg hreint endurnærð tilbaka.
Þegar komið var í bæinn áí gær skellti ég mér með Bjössa, Adda, Pétri og Guðrúnu á tónleikana með Sigurrós and vó þeir voru geggjað góðir:-)
Helgan fékk inní skólann í Danmörku sem ég vildi svo mikið komast inní en eini gallinn er sá að ég fékk inn á næstu önn, voru víst svo rosalega margir sem sóttu um að þau deildu þeim sem þeim  leist best á niður á báðar annirnar. Þannig það er frábært að vita að maður hafi flogið þarna í gegn:-) Og kosturinn við að flytja út strax eftir jól en ekki núnaer sá að þá get ég undirbúið þetta allt saman mun betur og þá er ég nú fyrst og fremst að ná dönskunni  betur hehe En þar hafið þið það, þið fáið að hafa mig aðeins lengur gott fólk á klakanum, gott fyrir suma en aðra ekki hehe

Hugs and kisses

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 01:54:27 / pinky

Snilldarhelgi

Jæja vá enn önnur vikan að starta sér en þessi er frábrugðin öðrum að því leytinu til að þetta er er vikan þar sem svörin berast úr skólunum sem ég sótti um í Danaveldinu og einnig er þetta síðasta vikan sem ég hef til að eyða með litlu systur áður en ég flyt út (ef ég fæ inngöngu) þar sem skvísan er að skella sér í smá útlandaferð til Spánar:-( Vá hvað þetta er allt fljótt að líða og ekki eru þetta margir dagar þar sem ég er að vinna á Svarta á Miðvikudag og Fimmtudag beint eftir vinnu.
Nú helgin var í alla staði geggjuð, byrjaði á Föstudaginn á smá matarboði hérna í Bollagörðunum þar sem honum Bjössa mínum var boðið í þessa dýrindis kjúklingamáltíð a´la mamma og geggjuðu sósunni hennar, ummmmm fæ vatn í munninn við tilhugsunina. Nú Harry, Karen og Ívar náðu svo í okkur og við skelltum okkur á The Red Carpet á Rex hehe þar sem fm var með forsýningarpartý, við Bjössi héldum svo á Hressó þar sem Addi og Pétur sátu að sötri. Guð hvað maður var búin að gleyma skemmtuninni sem fylgir þessum þremur saman á skrallinu, þetta var æðislegt kvöld í alla staði og þakka ég þeim fyrir frábæra brandara og mikla skemmtun. Skemmtunin varð svo ekki minni daginn eftir þar sem ég var klædd eins og ég veit ekki hvað í íþróttabuxum og hælaskóm, mín eitthvað að tapa tískunni hérna hehe En haldið þið að mín hafi ekki tekið sig saman í andlitinu eftir erfiðan dag þar sem mikið gekk á og skellt sér í pilsið og sæta bolinn og farið í grillpartý í Kópabænum;-) Þar var maturinn ekki af verri endanum og skemmtunin ekki minni (Elska sumartímann), drifum okkur svo af stað fyrir 10 þar sem ferðinni var heitið útí Viðey í eitt rosalegasta og skemmtilegasta partý sem ég hef farið í hjá Gísla og Ægir og þakka ég bara kærlega fyrir mig:-) Liðið mitt hélt svo áfram í bæinn á meðan sumir fóru heim að lúlla sér hehe Snilldarfólk sem maður hitti í bænum enda fór ég bara inná Sólon þar sem sæti bróðir minn var í dyrunum að vinna og sætu krúsídúllu eyjaskvísurnar mínar sátu inni í góðum gír. Verðum góðar gells í þjóðhátíðinni;-)
Nú talandi um þjóðhátíðina 2006, með þessu áframhaldi verða bara nánast allir mínu nánustu þar hehe Ennþá tveir-þrír sem eru að velta þessu fyrir sér og enn tveir-fimm sem eru búnir að tilkynna að þeir fari ekkert þangað þetta árið og er þeim fyrirgefið þar sem þeir komu með góða skýringu á því hehe (flytja uppá skaga, eða vera óléttur og þar fram eftir götunum eru afsakanir sem teknar eru gildar) Nú grúbban mín sem samanstendur af peysugenginu góða mér, Brínku, Ibbu og Karen hefur fengið það góða nafn WWW, ég stel þessari hugmynd ekki þar sem góðvinur minn sjálfur Addi B. kom með þetta snilldarnafn þegar mesta nauðsyn var á því hehe  Já hann getur státað sig afþví að eiga nafnið á grúbbunni okkar þetta árið og munum við lofa honum því að misnota það ekki og virða reglurnar sem fylgja því að fá að ganga með það á peysunum okkar hehe og einnig fær hann náttúrulega umboðslaun í framhaldi af þjóðhátíðinni þegar við verðum þekktar;-)

Nóg af bulli hérna ætla að fara að lúlla mér

Pinky over & out

P.S nýjar myndir undir júlímánuður:-)

» 4 hafa sagt sína skoðun

17.07.2006 20:04:52 / pinky

Góð helgi að baki!!!!

Já mín var í ballstuði þessa helgina:-) Fór á Sálina á Föstudaginn með Steffí minni og var alveg brjálað stuð nema kannski einum of mikið af fólki á Nasa. En við löbbuðum þar inn eins og prinsessur, þurftum ekkert að borga og fórum fram fyrir röðina. Gott að eiga æðislegan bróðir;-) Nú skellti mér svo á smá flandur með Harry á Laugardaginn þannig mín var farin á fætur um hádegi sem var bara gott mál enda passaði ég snúllu frænku mína seinnipartinn á meðan foreldrarnir skelltu sér í brillup.Svo var ekkert annað í stöðunni en skella sér í glamúrkjólinn og henda sér í tjúttið til Steffíar þar sem útlandaskvísurnar voru saman komnar að hita upp fyrir ball númer tvö á Nasa þessa helgi hehe já einmitt ballhelgin góða þar sem Skímó var að spila þetta kvöldið:-)
En það er svo fyndið að sjá hvað þessir svokölluðu "hnakkar" og "töffarar" í miðbænum verða of miklir gæjar þegar þeir eru komnir í glas, og fyrir utan þessi slagsmál alltaf í bænum. Ég bara get ekki skilið hvernig slagsmál leysa alla hluti eða allaveganna sumir halda að þau geri það sem er náttúrulega bara það allra vitlausasta sem til er.
Nú styttist heldur betur í svarið frá skólunum í Danaveldi og byð ég til guðs um að ég komist inn í einhvern af þeim. Annars er það bara líffræði og eðlisfræðiáfangar í fjarnámi í haust og svo Danaveldi í Janúar í staðinn en audda vona ég að það komi ekki til, alltaf gott að hafa samt backup plan:-)

Jæja back to the tv, jamm pinky er sjónvarpssjúklingur á Mánudögum hehe

Setning dagsins er "komið fram við aðra eins og þið viljið að sé komið fram við ykkur"

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.07.2006 15:30:19 / pinky

Partille Cup 2006

Jæja þá er mín komin heim frá Sverige nánar tiltekið af handboltamótinu Partille Cup:) Þetta var ein sú magnaðasta ferð sem ég hef farið í og þrátt fyrir að hafa verið þarna með 20 stelpum sem eru allar á þeim skemmtilega gelgjualdri 13 ára þá var þetta yndislegur tími í alla staði.

Hefði aldrei getað ímyndað mér að þetta mót væri svona ofboðslega stór og umfangsmikið eins og það er, þarna voru um 870 lið allsstaðar að úr heiminum og spilaður handbolti á 47 völlum:-) Nú Gróttu liðið stóð sig eins og hetjur  og þá bæði stelpur og strákar en við vorum samtals 87 manns frá Gróttu. Strákarnir okkar unnu í B14 lið frá Noregi 16-10 í úrslitaleiknum en bæði strákaliðin komust áfram í 16 liða úrslit mótsins sem er mjög góður árangur. Farið var í Skara Summerland sem er vatna og ævintýragarður daginn eftir komu til Svíþjóðar þar sem mótið var ekki sett fyrr en á Miðvikudeginum og ekkert að gera hjá okkur í 30 stiga hita og sól hehe Þannig var veðrið alveg fyrstu fjóra dagana og svo bara 30 stiga hiti og ský sem var mjög þægilegt fyrir keppendur. Einnig fórum við í bátsferð um hluta Gautaborgar sem var mjög gaman og að sjálfsögðu í Liseberg sem er alveg rosalega stórt tívolí þarna. Reyndar voru farnar tvær ferðir þangað en í seinna skiptið í þeim tilgangi að horfa á úrslitaleik HM og var mín mjög sátt við úrslitin:-)

Eins og ég segi þessi ferð bara algjör snilld og allir sem tóku þátt í henni mjög sáttir held ég bara hvort sem talað er um keppendur, þjálfara, fararstjóra eða bara foreldra sem komu til að horfa á:-) Sá það líka að handboltinn er sko heill heimur sem maður þekkti ekki alveg fyrir þetta mót. Ég er búin að setja inn einhverjar myndir og svo kemur restin í kvöld, vonandi hafið þið gaman af;-)

Næsta helgi átti nú að fara í útilegu en eitthvað er veðrið að stríða þannig spurning um hvar maður endar, einhverjar hugmyndir?

Útlandastelpan kveður að sinni


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.07.2006 00:39:07 / pinky

Hallgeirsey og Færeyskir dagar í Ólafsvík!!!!!

Jæja þá er ein sú magnaðasta helgi ársins búin og get ég ekki sagt annað en að fyrsta útilega sumarsins lofar sko bara góðu fyrir hinar komandi vona ég:-)
Við lögðum af stað ég, Benný, Liljan og Bjössinn um átta leytið og brunuðum í áttina að Hallgeirsey sem er í stuttri fjarlægð frá Hvolsvelli. Audda var stoppað á Selfossi og skellt í sig svona eins og einni máltíð á KFC enda byrjar engin ferð án þess:-) Nú þegar komið var í þessa svokölluðu "háskólaútilegu" var byrjað á því að koma sér fyrir með öllu því sem fylgir, opnaður bjór og tjaldinu skellt upp. Kom í ljós að sumir voru reyndari en aðrið í að tjalda en hey það kemur fyrir besta fólk hehe Nú svo hófst bara drykkjan og skemmtunin, við vorum reyndar aldursforsetar þarna með meiru eða allaveganna svona nánast þannig sú crazy ákvörðun var tekin að skella sér á Færeysku dagana í Ólafsvík á Laugardeginum:-) Við skemmtum okkur nú samt frábærlega á Föstudeginum og var mikið dansað og mikið rölt um svæðið, sváfum svo til hádegis og þá var ákveðið að pakka saman og halda af stað vestur með stoppi í sundlauginni á Selfossi og nokkrar mín. í Reykjavíkinni.  Við vorum komin til Ólafsvíkur eitthvað um korter í 7 og þá var brunað beint til Írsu sætu og félaga og komið þeim allverulega á óvart enda lét ég skvísuna ekkert vita að við værum á leiðinni. Hún á afmæli í dag þessi elska og segi ég bara hér og nú TIL HAMINGJU MEÐ 24 ÁRIN ELSKAN MÍN!!!!! Hefði aldrei getað hugsað mér að geta ekki knúsað þig á sjálfum afmælisdeginum þínum eins og í fyrra. Nú kvöldið varð hin agalegasta skemmtun, mikið sungið, spilað á kassagítar og svo toppurinn að skella sér á ball með í Svörtum fötum í Klifi:-) Þetta var magnað og get ég ekki sagt annað en maður missti bara vatn þarna inni þegar Jónsi tók bolinn af sér og stóð þarna hálf nakinn, jafn flottan líkama hef ég ekki séð lengi. Djammið stóð til að ganga sex um morguninn og skriðu þá allir heavy sáttir með kvöldið í tjaldið góða, hefði reyndar dáið úr kulda ef ég hefði ekki haft ,,ofninn" með mér þarna:-)
Takk fyrir geggjaða helgi elskurnar mínar og vonandi verður þetta endurtekið áður en sumarið nær enda

Nýjar myndir komnar frá skírn Arons og afmæli Viktors, kveðjustund Spánarfaranna og svo audda frá helginni:-)

Ég segi bara hafið það gott út vikuna, mín er farin til Svíþjóðar í fyrramálið og svo þegar ég kem heim verður góðvinur minn frá Þýskalandi kominn á klakann svo það er ekkert nema góðir dagar framundan hjá pinky og alltaf stanslaust stuð

Pinky Svíþjóðarfari og útilegufrík Over & Out


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.06.2006 16:01:51 / pinky

Jahá

Þetta er alveg stórsniðug könnun sem ég mæli með að allir prófi og sjái hver sín sanna ást er!!!!

http://www.crushcalculator.com/content/love/337222519

En annars voða lítið að frétta af Helgunni, stefnan tekin á fyrstu útilegu sumarsins um helgina og er háskólaútilegan að verða fyrir valinu bara:-) Líst alveg rosalega vel á þetta og mikil tilhlökkun í gangi þrátt fyrir lélega veðurspá. Nú svo er það bara Svíþjóð á Mánudagsmorguninn í eina viku og um að gera að fara að gera að sig ready ef maður verður ekki heima við alla helgina, er svo mikil last minute manneskja að það hálfa væri nóg enda ekki búin að neinu.

Var að tala við einn góðan vin minn á msninu í gærkvöldi og annað eins  hláturkast hef ég ekki fengið í langan tíma þegar hann tilkynnti mér að fugl væri kominn inní herbergið hans, he he he hefði bara viljað vera fluga á vegg og sjá svipinn á andlitinu hans. Minn maður örugglega orðið skelkaðari en allt:-)

Lofa myndum inn í kvöld og þá mun ég setja þær á læsta síðu þar sem fjórir einstaklingar sem ég þekki ekkert komu uppað mér í bænum ´siðastliðna helgi og tjáðu sig eitthvað um myndirnar mínar, vil ekki svoleiðis. Senda bara meil á mig á helgasolveig@hotmail.com og ég mun svara um hæl ef þið viljið skoða;-)

Pinky over & out


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8